Fara í efni

Lækkun á gjaldskrá Suðurnesjabæjar

Lækkun á gjaldskrá Suðurnesjabæjar

Á 189.fundi bæjarráðs var samþykkt samhljóða að lækka ákveðna þætti í þjónustugjaldskrá Suðurnesjabæjar sem snúa að barnafjölskyldum, sem liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í Suðurnesjabæ.

Eftirfarandi þjónustuþættir verða lækkaðir um 3% frá og með 1.júní nk.

  • Tímagjald leikskóla
  • Fæðisgjald leikskóla
  • Vistunargjald skólasels
  • Tímagjald skólasels
  • Fæðisgjald skólasels
  • Námsgjald Tónlistarskóla
  • Hljóðfæraleiga Tónlistarskóla

Með þessu vill Suðurnesjabær leggja sitt að mörkum við að draga úr verðbólguþrýstingi ásamt því að tryggja barnafjölskyldum hagstæðar gjaldskrár og veita góða þjónustu.